Leigusamningar veiðisvæða til umræðu hjá Veiðifélaginu Flóka

Stjórnarfundur 19. febrúar 2026

Stefnt á að aðalfundur Veiðifélagsins Flóka verði þann 14. maí 2026

Stjórn Veiðifélagsins Flóka kom saman á fjarfundi 19. febrúar 2026 þar sem tekin voru fyrir nokkur helstu málefni félagsins fyrir komandi starfsár.

Á fundinum var samþykkt að stefna að því að alfundur Veiðifélagsins Flóka verði haldinn 14. maí 2026. Nánari upplýsingar um fundinn og dagskrá verða kynntar síðar.

Einnig var rætt um endurnýjun leigusamninga fyrir efra og neðra veiðisvæði félagsins. Samþykkt var að fresta frekari umræðu til næsta stjórnarfundar, en stefnt er að því að stjórn leggi fram skýra tillögu á aðalfundi um hvort svæðin verði boðin út til leigu eða hvort gengið verði til endursamninga við núverandi leigutaka.

Ákveðið var að halda annan stjórnarfund í byrjun apríl, þar sem formaður mun leggja fram ársreikning félagsins og skýrslu stjórnar fyrir aðalfund.

Deildu póstinum: