Stjórn Veiðifélagsins Flóka hefur boðað til skjáfundar laugardaginn 24. október 2026 kl. 11:00. Á fundinum verða tillögur að nýjum leigusamningum um efra og neðra veiðisvæði Flókadalsár kynntar, ræddar og teknar til afgreiðslu.
Á aðalfundi félagsins 14. maí síðastliðinn var samþykkt að heimila stjórn að ganga til samninga við núverandi leigutaka, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi gott samstarf, stöðugleika og hagkvæma nýtingu veiðisvæðanna. Jafnframt var ákveðið að samningarnir skyldu bornir undir fund með lögbýlum áður en þeir tækju gildi.
Stjórnin hefur nú lagt fram tillögur að nýjum þriggja ára leigusamningum fyrir veiðitímabilin 2027–2029. Tillögurnar fela meðal annars í sér 25% hækkun leigugjalda, breytt fyrirkomulag vísitölutengingar við endurnýjun samninga og afnám gjaldfrjálsra bændadaga.
Á fundinum verður farið yfir tillögur stjórnar og þær athugasemdir sem borist hafa frá félagsmönnum. Öllum fulltrúum lögbýla verður gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og verður lögð áhersla á málefnalega umræðu og að ná sem víðtækastri sátt um niðurstöðu málsins.
Fundartengill og þátttaka
Fundartengill hefur verið sendur félagsmönnum með tölvupósti.
Þeir eigendur eða fyrirsvarsmenn lögbýla sem ekki hafa fengið fundartengilinn, en óska eftir að taka þátt í fundinum, geta haft samband við Pál Marvin Jónsson, formann Veiðifélagsins Flóka, fyrir fundinn á morgun, laugardaginn 24. október, og óskað eftir að fá tengilinn sendan.
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í fundinum og leggja sitt af mörkum til farsællar niðurstöðu um framtíðarfyrirkomulag leigu veiðisvæðanna.
Stjórn Veiðifélagsins Flóka