Dags.: Laugardaginn 14. nóvember 2026
Tími: Kl. 13
Staðu: Félagsheimilið Ketilás í Fljótum
Tilefni fundarins
Ath. uppfærð frétt
Á aðalfundi Veiðifélagsins Flóka þann 14. maí 2026 var samþykkt að heimila stjórn að ganga til samninga við núverandi leigutaka um endurnýjun leigusamninga vegna veiðiréttinda í Flókadalsá, með þeim fyrirvara að samningarnir yrðu lagðir fyrir síðar boðaðan félagsfund til samþykktar.
Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á aðalfundinum. Þeir sem greiddu atkvæði með tillögunni fóru samtals með 52% allra eininga samkvæmt arðskrá félagsins.
Stjórn hefur unnið samkvæmt þessari samþykkt, átt viðræður við núverandi leigutaka og lagt fram tillögu að endurnýjun samninganna.
Tillagan var kynnt og rædd á fundi fulltrúa lögbýlanna þann 24. október síðastliðinn. Þar komu fram ólík sjónarmið og tillögur, meðal annars um að bjóða veiðiréttindin út. Ekki náðist endanleg niðurstaða og var því ákveðið að boða til nýs fundar.
Tilgangur fundarins 14. nóvember er að taka formlega afstöðu til tillögu stjórnar um endurnýjun leigusamninga, í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar, og fjalla eftir atvikum um aðrar framkomnar tillögur.
Dagskrá
1. Fundarsetning
-
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
-
Yfirferð mætingar og umboða.
2. Endurnýjun leigusamninga um veiðiréttindi í Flókadalsá
-
Yfirferð á samþykkt aðalfundar 14. maí 2026 og umboði stjórnar.
-
Kynning á tillögu stjórnar um endurnýjun leigusamninga við núverandi leigutaka.
-
Umræður um framkomnar tillögur og sjónarmið, meðal annars varðandi bændadaga og útboð veiðiréttinda.
-
Afgreiðsla tillögu stjórnar um endurnýjun leigusamninga.
-
Afgreiðsla annarra framkominna tillagna eftir því sem við á.
3. Önnur mál
Mikilvægt varðandi afgreiðslu málsins
Á fundinum er fyrirhugað að taka formlega ákvörðun um ráðstöfun veiðiréttinda félagsins með endurnýjun leigusamninga.
Verði tillaga stjórnar ekki samþykkt verður tekin afstaða til annarra leiða, þar á meðal framkominnar tillögu um útboð.
Mæting og umboð
Mikilvægt er að sem flest lögbýli eigi fulltrúa á fundinum.
Þeir sem mæta fyrir hönd annarra veiðiréttarhafa eru vinsamlegast beðnir um að leggja fram skriflegt umboð. Umboð má senda með tölvupósti til stjórnar fyrir fundinn.
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og taka þátt í að ná farsælli niðurstöðu um framtíðarfyrirkomulag veiðiréttinda í Flókadalsá.
Hægt er að sækja útfyllanlegt blað til að fylla út og senda inn umboð hér:
Umboð fyrir fund 14.nóvember 2026
Bestu kveðjur,
F.h. stjórnar Veiðifélagsins Flóka
Páll Marvin Jónsson