Félagsfundi Veiðifélagsins Flóka frestað vegna veðurs

Stjórn Veiðifélagsins Flóka hefur ákveðið að fresta félagsfundi sem halda átti laugardaginn 14. nóvember 2026 vegna slæmrar veðurspár og óhagstæðra ferðaskilyrða. Stefnt er að því að halda fundinn eftir áramót.

Nýr fundartími verður auglýstur eftir áramót og félagsmönnum sent fundarboð með tilskildum fyrirvara.

Stjórn Veiðifélagsins Flóka þakkar félagsmönnum fyrir málefnalegar umræður og gott samstarf við að finna sameiginlega leið áfram.

Deildu póstinum: