15. október 2025
Góðar veiðitölur og samþykktar úrbætur við ána
Stjórn Veiðifélagsins Flóka fundaði 15. október 2025 á fjarfundi þar sem farið var yfir veiðitölur sumarsins, stöðu reikninga og ýmis málefni sem tengjast rekstri félagsins og ástandi árinnar.
Helstu tíðindi fundarins voru afar ánægjulegar veiðitölur sumarsins 2025. Samkvæmt skráningum veiddust 22 laxar, 107 sjóbirtingar, 169 sjóbleikjur og 230 staðbundnar bleikjur eða urriðar. Þetta er veruleg aukning frá fyrra ári, sérstaklega í lax- og sjóbirtingsveiði.
Á fundinum var einnig farið yfir stöðu reikninga og bókhalds. Allir fyrirliggjandi reikningar höfðu verið greiddir og komu engar athugasemdir fram.
Rætt var um rof í bakka og breytingar á farvegi árinnar við Austarihól. Samþykkt var að heimila að ráðast í úrbætur á ánni á landi Ausarihóls og á kostnað landeiganda, með það að markmiði að draga úr rofi og bæta rennsli. Lögð var áhersla á að framkvæmdir raski ekki uppeldisstöðvum fiska eða valdi skemmdum á vistkerfi árinnar.
Leigutakar veiðisvæða lýstu jafnframt ánægju með veiðisumarið og aðstæður við ána.
Einnig var rætt um mögulegar úrbætur á skráningu fisktegunda til að tryggja meiri samræmi í veiðigögnum til framtíðar.
Stjórnin