Okkar hlutverk er að stuðla að sjálfbærni veiðistofnsins
Veita ráðgjöf um ábyrga nýtingu
til eigenda og hagaðila

Aðild að veiðifélagi
Félagsmenn veiðifélags eru allir þeir sem skráðir eru veiðiréttarhafar á félagssvæðinu skv. 12. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði. Ef nýr aðili tekur við veiðirétti skv. II. kafla laganna fyrir afsal eða á grundvelli ábúðarsamnings er þeim aðila skylt að gerast félagsmaður í veiðifélagi og taka á sig skuldbindingar fráfarandi félagsmanns.
Umdæmi veiðifélags
Umdæmi veiðifélags getur náð yfir heilt fiskihverfi, einstakt veiðivatn í fiskihverfi, hluta af veiðivatni, þar sem sérstaklega hagar til um veiði eða vatnskosti, eða veiðivötn á afrétti sem eru hluti af einu eða fleiri fiskihverfum og eru á sama landsvæði.
Ef veiði hefst fyrir landi fasteignar, sem liggur að fiskihverfi veiðifélags en er utan félags-svæðis, skal sú fasteign tilheyra félagssvæðinu, og er viðkomandi veiðiréttarhafa skylt að gerast félagi. Ef félagssvæði er hluti straumvatns skal umdæmi veiðifélags ná svo langt upp með vatninu sem veiði er stunduð, nema sérstaklega standi á, t.d. vegna fiskræktar.
,,Veiðifélagið Flóki gegnir þvi megin hlutverki að tryggja að jarðeigendur og ábúendur í Flókadal hafi tekjur af og njóti góðs af því sem áin gefur af sér. Það er okkar að tryggja að hún geri það um ókomna tíð og skili arði til eigenda sinna"
Formaður
Verkefni Veiðifélagsins Flóka:
Lögð er áhersla á skráningu, stýrða nýtingu, verndun svæða, fræðslu og samvinnu við hagaðila til að tryggja sjálfbæra veiði og gott aðgengi.
Stjórnun og eftirlit:
Tryggja skráningu í veiðibók og hafa eftirlit með fiskgegnd til að meta stofnastærð og ástand. Stýra álagi með veiðitímabili og fjölda stanga.
Stjórnsýsla og nýtingarstefna:
Að fylgja eins og kostur er vísindalegum ráðleggingum um hámarksveiði til að koma í veg fyrir ofveiði og stuðla að sjálfbærni veiðistofnsins.
Verndun svæða:
Merkja og vernda hrygningarsvæði og uppeldissvæði seiða og ungviða til að tryggja vöxt og endurnýjun.
Samskipti og samvinna:
Eiga í góðum samskiptum við félagsmenn, leigutaka, veiðimenn, stjórnvöld og vísindasamfélagið og vinna að lausnum til að viðhalda svæðinu og stuðla þannig að uppbyggingu heilbrigðra fiskistofna.
Þjálfun og fræðsla:
Koma á góðum vinnubrögðum, umhverfisvitund og fræðslu um mikilvægi sjálfbærrar nýtingar.
Aðgengi og umhverfi:
Vinna með jarðeigendum, ábúendum, leigutökum og opinberum aðilum að því að tryggja gott aðgengi að félagssvæðinu og stuðla að góðri umgengni.