Hverfur villti laxinn? – Fræðslufundur um IBSEM líkanið

Hverfur villti laxinn? – Fræðslufundur um IBSEM líkaniðLandssamband veiðifélaga boðar til fræðslufundar fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 20:00 þar sem fjallað verður um IBSEM líkanið, þróun villtra laxastofna og möguleg áhrif erfðablöndunar frá eldislaxi.

Jón Scheving Thorsteinsson hjá Arev mun kynna líkanið, en það hermir þróun laxastofna ár frá ári yfir langt tímabil og sýnir hvernig erfðablöndun getur safnast upp yfir kynslóðir.Á fundinum verður meðal annars fjallað um niðurstöður greininga fyrir íslenskar laxveiðiár. Að kynningu lokinni verður góður tími fyrir umræður og spurningar, meðal annars um hvernig sambærileg greining gæti nýst einstökum veiðifélögum og veiðiám.

Þátttaka á Zoom
Fundurinn verður einnig aðgengilegur í fjarfundi. Staðfundur í Reykjavík og geta þá verið í sambandi við Jóhann Helga (johann@angling.is) eða Pál Marvin (pmj@olfus.is) til að fá tengil á fundinn.

Þeir sem vilja mæta í eigin persónu geta komið í Sal A – Iceland Parliament Hotel miðbæ Reykjavíkur.
Staðsetning: https://maps.app.goo.gl/v5ffMrbtBTHMRwkg8

Fundurinn er opinn félagsmönnum veiðifélaga og veiðifélagadeilda, stjórnarfólki, fjölskyldumeðlimum, leigutökum og öðru áhugafólki.

Landssamband veiðifélaga hvetur sem flesta áhugasama um málefni villtra laxastofna til að taka þátt.

Deildu póstinum: